




Líffærafræði læknadeildar Háskóla Íslands er starfsvettvangur kennara fræðasviðsins og þeirra vísindamanna og nemenda sem þar starfa. Innan líffærafræðinnar er stunduð umfangsmikil kennsla í ýmsum undirgreinum líffærafræðinnar auk þess sem stundaðar eru rannsóknir innan fræðasviðsins. Innan líffærafræðinnar starfa sjálfstæðir rannsóknahópar og meðal rannsóknaverkefna má nefna rannsóknir í taugalíffræði og stofnfrumufræðum, vefjafræði ýmissa líffæra s.s. heilans, brjóstkirtils og lungna. Bæði eru stundaðar grunnrannsóknir í frumulíffræði og rannsóknir er tengjast sjúkdómum svo sem krabbameini og heilabilun. Mikil uppbygging er hafin innan fræðasviðsins eg er lögð mikil áhersla á að byggja upp kjarnasetur (core facility) í frumuræktunum (cell culture facility) og myndvinnslu (imaging center).
Hópstjórar:
Hannes Petersen
Pétur Henrý Petersen
Una Strand Viðarsdóttir