Lífvísindasetur Læknagarðs

1.jpg


Lífefna- og sameindalíffræði



Lífefna- og sameindalíffræðistofa er starfsvettvangur kennara í lífefnafræði, meinefnafræði og erfðalæknisfræði við læknadeild. Viðfangsefni fræðasviðsins eru bæði grunnvísindi og læknisfræði, en almenn áherslusvið eru efnaskipti kjarnsýra, genalækningar, þroskunarfræði, stofnfrumur, næringarfræði og samspil erfða og umhverfis. Rannsóknastofan býr yfir öflugum tækjabúnaði og er stefnt að því að efla hann enn frekar í samstarfi við aðra rannsóknahópa í Lífvísindasetri Læknadeildar. Frekari upplýsingar um rannsóknir kennara stofunnar er að finna á undirsíðum einstakra kennara. Umsjón með daglegum rekstri lífefna- og sameindalíffræðistofu hefur Jónína Jóhannsdóttir deildarmeinatæknir.

Hópstjórar:
Jón Jóhannes Jónsson
Eiríkur Steingrímsson
Ingibjörg Harðardóttir
Guðrún Valdimarsdóttir
Reynir Arngrímsson
Stefán Sigurðsson